Orbea Rise SL er fulldempað trail rafmagnsfjallahjól hannað til að vera létt, lipurt og kraftmikið með góðri batterí endingu. Hjólið er einungis fáanlegt í carbon útgáfu og sumar útgáfurnar af hjólinu bjóða upp á að sérhanna alla liti á hjólinu þér að kostnaðarlausu. Hjólið er drifið af Shimano EP810 mótor með allt að 100NM tog og 750 W afli. Fáanlegt með 420 WH (1,95 kg) eða 630 WH (2,9 kg) innbyggðu batteríi, auk þess er hægt að panta það með 210 WH utanáliggjandi batteríi fyrir lengstu ferðirnar. Hjólið er eitt léttasta hjólið í sínum flokki, frá 17 kg. Rise SL kemur með 65.5º head angle og 140 mm fjöðrun að framan og að aftan, sem skilar sér í lipru hjóli sem er fullkomið fyrir slóða. Hjólið er fáanlegt með rafmagns dropper sætispípu sem er stjórnað þráðlaust í gegnum sömu fjarstýringu og mótorinn, hægt er að velja að droppa alla leið eða hálfa leið eftir aðstæðum. Einnig er hægt að fá hjólið með Shimano rafskiptum sem virka einstaklega vel með Shimano mótornum, og bjóða upp á sjálfskiptingu. Allir kaplar eru þræddir snyrtilega inn í stellið, sem kemur einnig með innbyggðu verkfæri og hlífðarfilmum. Draumahjól fyrir þau sem vilja létt og kraftmikið trail rafmagnsfjallahjól sem hegðar sér eins og venjulegt fjallahjól.
Til að sjá nánari upplýsingar um hjólið
Skoða nánar
Hægt er að sérhanna lit á þessu hjóli þér að kostnaðarlausu á heimasíðu Orbea.
Einnig er hægt að velja aðra íhluti á hjólið, borga þarf aukalega fyrir
dýrari íhluti, sendið okkur línu til að fá tilboð í uppfærsluna. Skoða nánar