: Muga fulldempað rafmagnsborgarhjól forpöntun

Muga er virkilega flott fulldempað rafmagnsborgarhjól sem virkar einnig frábærlega í ævintýraferðir út fyrir malbikið. Hjólið kemur með kraftmiklum 120 NM Bosch mótor og er fáanlegt með annað hvort 600 WH batteríi fyrir þau sem vilja léttara hjól eða 750 WH batteríi fyrir þau sem vilja drífa lengra. Hjólið kemur með 120 mm framdempara og 115 mm afturdempara sem hentar frábærlega bæði innanbæjar og fyrir allskonar slóða. Þetta er draumahjól fyrir þau sem vilja nýta sér rafmagnshjól til að komast á milli staða í stíl og skreppa af og til í ævintýraferðir upp í Heiðmörk.

Fann engar vörur
Notaðu færri flokka eða clear all

Gert fyrir ævintýrin

Muga er ekki bara borgarhjól sem er frábært til að koma þér á milli staða, heldur er það einnig frábært fyrir skemmtilega hjólatúra úti í náttúrunni. Það er hannað til að taka þ ig lengra, það kemur með kraftmikilli aðstoð, langri drægni, góðri fjöðrun og er hannað til að vera stöðugt í krefjandi aðstæðum.

Hannað til að fara víða

Njóttu þess að hjóla um á öruggu, stöðugu hjóli sniðið að þínum þörfum.

Kraftmikill Bosch mótor

Muga kemur með 120 NM kraftmiklum Bosch Performance CX Gen5 mótor sem gefur þér kraftmikla en mjúka aðstoð

Snjöll hönnun

Frá upphafi var hugsað út í öll smáatriði eins og val á íhlutum sem vinna vel saman til að gera hvern hjólatúr eins góðan og hægt er.

Hannað með öryggi í huga

Hjólið hefur verið hannað með öryggi í huga frá upphafi, allt frá ljósabúnaði, stöðugleika, dekkjabúnaði, bremsum, app mótorlæsingu og leyndu geymsluhólfi fyrir airtag.

Stöðug og góð fjöðrun

Muga hjólið kemur með 120 mm fjöðrun að framan og 115 mm fjöðrun að aftan, fullkomið fyrir þægilegan og stöðugan hjólatúr bæði innanbæjar og á skemmtilegum slóðum í náttúrunni

Stilltu hjólið fyrir þínar þarfir

Hægt er að velja á milli fjögurra stillinga á stýrinu til að finna bestu stöðuna fyrir þi g. Færðu stýrið ofar og nær þér fyrir auking þægindi, eða fjær þér og neðar til að fara hraðar

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is