Gjarðir
27,5"
Gírar
7 eða 9
Stærðir
S - XL
Stell
Ál
27,5"
gjarðir
27,5" gjarðir gefa pláss fyrir breiðari dekk án þess að hjólið verði þungt í rúllinu. Þú færð lipurt hjól með gott grip og þægindi á misjöfnum götum.
Öflugar
bremsur
Sama hvaða Vector þú velur, þá kemur það með öflugum vökvadiskabremsum sem stoppa hjólið örugglega þegar á þarf að halda.
Dynamo
ljós
Vector 20 og 10 koma með fram- og afturljósi sem ganga fyrir Shimano dynamo í framgjörðinni. Ljósin eru alltaf til taks og það þarf aldrei að hlaða þau.
Síminn
á stýrinu
Öll Vector hjólin koma með SP Connect símafestingu á stammanum, svo að þú sjáir leiðina í símanum á meðan þú hjólar.
Sterk
bretti
Vector 20 og 10 koma með álbrettum með sterkum festingum sem þola daglega notkun, allan ársins hring.
Festingar
fyrir lás
Festipunktar undir efri stönginni og á neðri stönginni halda lásnum þínum á sínum stað. Einnig er hægt að fá ABUS lás sem er festur á stellið, þægilegt þegar þú skreppur inn á kaffihús.
Bögglaberi
að framan
Vector 25 kemur með léttum bögglabera að framan sem ber allt að 10 kg. Hann er festur á stellið, svo að hjólið stýrist eðlilega þó að hann sé hlaðinn, og teygjur halda farangrinum á sínum stað.
20 kg
bögglaberi
Vector 20 og 10 koma með bögglabera að aftan sem ber allt að 20 kg. Hann tekur venjulegar hjólatöskur og smellukerfin frá MIK og Ortlieb.
30 kg
bögglaberi
Á Vector 20 og 10 er líka hægt að velja sterkari bögglabera sem ber allt að 30 kg, til dæmis fyrir barnastól eða þyngri farangur.
Stýri sem
snýst
Hægt er að fá Vector með stamma sem leyfir þér að snúa stýrinu um 90°. Þannig tekur hjólið mun minna pláss í þröngum gangi, geymslu eða hjólastæði.
Pedalar sem
leggjast
Einnig er hægt að fá pedala sem leggjast upp að hjólinu á augabragði. Þeir eru sterkir og með góðu gripi, þó að þeir séu samanbrjótanlegir.
Nett
hjól
Lág efri stöng og stutt hjólhaf gera Vector lipurt á ferð og þægilegt í meðförum þar sem plássið er lítið.