: Carpe rafmagnsborgarhjól

Carpe er létt og skemmtilegt rafmagnsborgarhjól hannað til að rúlla hratt eftir hjólastígum borgarinnar. Hjólið kemur útbúið 85 NM kraftmiklum Shimano mótor og 420 WH innbyggðu batteríi. Það kemur einnig með innbyggðum ljósum til að gera þig sýnilegan í íslenska vetrarmyrkrinu og er fáanlegt með ljóskastara að framan. Carpe er hannað til að taka lítið pláss þegar það er í geymslu, en það fáanlegt með pedölum sem er hægt að fella að hjólinu og stýri sem er hægt að snúa auðveldlega upp á. Hjólið kemur með allskonar aukahlutum eins og bögglabera, símafestingu, USB-C hleðsluporti og standara, en svo er hægt að fá hjólið í mismunandi útgáfum með eða án bretta, bögglabera að framan, belti, sjálfskiptingu, skjá, innbyggðan lás, og auka utanáliggjandi batterí svo eitthvað sé nefnt.

Fislétt og tilbúið í næstu keppni

Því hvert gramm skiptir máli í keppnum!

Hratt bæði upp og niður brekkurnar

120 mm fjöðrun og uppfærð hönnun á stelli

Hvert vatt skiptir máli

Þú sérð ekki hversu stíft stellið er, en þú finnur strax fyrir því þegar þú setur aflið í pedalana!

Létt dropper sætispípa

Oiz hjólið kemur með fisléttri OC (Orbea Components) dropper sætispípu sem að Orbea hefur hannað sérstaklega fyrir hjólið

Fislétt og tilbúið í næstu keppni

Því hvert gramm skiptir máli í keppnum!

Hratt bæði upp og niður brekkurnar

120 mm fjöðrun og uppfærð hönnun á stelli

Hvert vatt skiptir máli

Þú sérð ekki hversu stíft stellið er, en þú finnur strax fyrir því þegar þú setur aflið í pedalana!

Létt dropper sætispípa

Oiz hjólið kemur með fisléttri OC (Orbea Components) dropper sætispípu sem að Orbea hefur hannað sérstaklega fyrir hjólið

OMX Carbon stell

OMX carbon stellið er léttasta og stífasta útfærslan af Oiz hjólinu, en stellið vegur aðeins 1740 grömm. Einnig er í boði að sérhanna litina á OMX stellinu þér að kostnaðarlausu.

OMR Carbon stell

OMR carbon stellið er fyrir þau sem vilja gott carbon hjól fyrir minni pening

Ál stell

Flott ál stell fyrir þau sem eru að byrja í XC/Trail fjallahjólreiðum

Squidlock stýring

OMX og OMR carbon útgáfurnar af hjólunum koma með nýrri Squidlock stýringu sem gerir þér kleyft að stýra dropper sætispípunni (neðri takki) og velja á milli þriggja stillinga (opnir, stífir, læstir) fyrir fram og aftur demparana á þæginlegan hátt (efri takki).

Kaplar þræddir í gegnum stellið

Allir kaplar eru snyrtilega þræddir í gegnum stellið til að hjóli líti sem allra best út!

MyO

OMX stellið býður upp á MyO (My Orbea). Hannaðu draumahjólið þitt í þínum litum þér að kostnaðarlausu!

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is