Framdempari
180 mm
Afturdempari
170 mm
Gjarðir
29" / Mullet
Stell
Carbon
Hratt niður brekkurnar
Fjöðrun sem er fínstillt fyrir brattar brekkur og skilar þér niður á fullri ferð.
Stillanlegt fyrir hvern slóða
Þú stillir hjólið eftir slóðanum og þínum stíl, með fleiri stillingum en nokkru sinni fyrr.
Byggt til að endast
Sterkbyggt hjól með íhlutum sem þola allt álagið sem fylgir enduro hjólreiðum.
Stýrishorn ±0,75°
Með stýrislegunni breytir þú stýrishorninu um ±0,75°, til dæmis til að fá slakara horn fyrir brattari slóða.
Flip chip
Með flip chip velur þú hversu progressive fjöðrunin er, 22,5% eða 27,5%, og skiptir á milli High og Low stöðu. Low gefur meiri stöðugleika á hröðum slóðum, en High meira pláss undir pedalana.
553 g lóð
Með hjólinu fylgir 553 g lóð sem er skrúfað beint á GravityLink við sveifarleguna. Meiri þyngd neðst gefur mýkra og stöðugra hjól, og þú tekur lóðið af þegar þú vilt snarpara hjól.
29" eða mullet
Rallon fæst með 29" gjörðum að framan og aftan fyrir hámarks hraða, eða í mullet útgáfu með 27,5" að aftan fyrir leikandi og lipurt hjól. Geometrían helst sú sama í báðum útgáfum.
442 eða 450 mm afturþríhyrningur
Hægt er að velja á milli 442 mm og 450 mm afturþríhyrnings. Sá styttri gefur leikandi hjól, en sá lengri meiri stöðugleika á miklum hraða.
Kaplar í gegnum stýrið eða ekki
Þú velur hvort kaplarnir liggja inn í gegnum stýrisleguna eða inn um kapalgöt á stellinu.
OQUO MC32 gjarðir
MC32 TEAM álgjarðirnar eru þær sömu og keppnisliðið notar í fjallabruni, og MC32 LTD carbon gjarðirnar eru léttari kostur fyrir enduro.
FOX rafdempari
Fyrir þau sem vilja nýta hvert pedalatak er hægt að fá FOX rafdempara. Hann les slóðann 70 sinnum á sekúndu, stífnar í klifrinu og opnast alveg þegar brunað er niður.
FOX 38 framdempari
Krefjandi slóðar kalla á stífan og sterkan framdempara. Rallon kemur með 180 mm FOX 38.
Innbyggð verkfæri
Í stellinu er fjölverkfæri með 2, 3, 4 og 5 mm sexköntum sem segull heldur á sínum stað, og í afturöxlinum er 6 mm sexkantur.
LOCKR geymsluhólf
Geymsluhólf í stellinu þar sem þú geymir verkfæri, nesti eða jafnvel jakka.
Hljóðlátt og vel varið
Kaplarnir liggja inni í stellinu og mjúk gúmmíhlíf á afturþríhyrningnum dempar keðjuslátt, svo að ekkert skröltir. Stellið kemur líka filmað til að hlífa lakkinu.