Framdempari
160 mm
Afturdempari
150 mm
Þyngd frá
18 kg
Mótor
100 Nm
Létt og lipurt
Leikandi létt rafmagnsfjallahjól sem fangar allt það sem gerir fjallahjólreiðar skemmtilegar.
Kraftmesta Rise hingað til
Ný kynslóð af RS aðstoð sem sparar orku þegar lítið reynir á og bregst hratt við þegar slóðinn verður erfiðari.
Eitt samtengt kerfi
Mótor og rafdropper sætispípa í einu kerfi sem notar aðal batteríið og er stýrt með einni fjarstýringu.
420Wh
Batterí
Þyngd
1,9 kg
Áætluð hækkun
1500 - 1700 m
Léttasti kosturinn fyrir þá sem vilja sem lipurast hjól
630Wh
Batterí
Þyngd
2,9 kg
Áætluð hækkun
2000 - 2400 m
Fyrir lengri daga og meira klifur
210Wh
aukabatterí
Þyngd
1 kg
Áætluð auka hækkun
800 m
Utanáliggjandi batterí sem er smellt á hjólið í stað brúsahaldara
Djúp sætispípa
Stellið er hannað þannig að 210 mm dropper sætispípa kemst alla leið niður, og allt að 240 mm í stærðum L og XL, svo að hnakkurinn verði ekki fyrir þér á leiðinni niður!
Breyttu stellinu
Með QuickFlip við afturdemparann breytir þú geometríunni á hjólinu á aðeins nokkrum sekúndum áður en þú skellir þér niður fjallið.
Mullet eða 29"
Veldu 29" dekk að framan og aftan fyrir hámarks hraða og grip, eða 27,5" að aftan fyrir leikandi og lipurt hjól. Sér linkur fyrir hvora dekkjastærð sér til þess að geometrían haldist óbreytt.