Framdempari
140 mm
Gjarðir
29"
Dekk allt að
2,6"
Stell
Ál
Stell sem gefur eftir
Örlítil eftirgjöf í stellinu eykur þægindin og heldur hjólinu betur við jörðina, sérstaklega á ferð.
Geometría til að leika sér
Hvort sem þú hjólar XC eða ferð á stökkpallana er geometrían gerð til að leika sér, og hún gefur þeim sem eru að byrja meira öryggi.
Sterkt og einfalt
Sterkbyggt álstell sem kemur filmað frá verksmiðju og þolir hnjaskið, svo að þú getir bara haldið áfram að hjóla.
Djúp sætispípa
Stutt og bein sætispípa gefur pláss fyrir langa dropper sætispípu í öllum stærðum. Hnakkurinn fer alveg niður á leiðinni niður, svo að þú hafir meira pláss til að hreyfa þig á hjólinu.
140 mm framdempari
Langur 140 mm framdempari passar við leikgleðina í Laufey og leyfir þér að keyra hratt þó að slóðinn verði grófur.
Allt að 2,6" dekk
Afturþríhyrningurinn er mótaður til að gefa gott pláss fyrir allt að 2,6" breið dekk með miklu gripi.
Vandað álstell
Rörin í álstellinu eru mótuð og misþykk, sterkari við suðurnar þar sem álagið er mest og þynnri annars staðar til að spara þyngd.
LOCKR geymsluhólf
H10 og H-LTD koma með LOCKR geymsluhólfi á stellinu og OC tösku, með plássi fyrir helstu verkfæri og nesti.
Hljóðlátt og vel varið
Gúmmíhlíf á afturþríhyrningnum ver stellið fyrir keðjunni og dregur úr hávaða, og kaplarnir liggja inni í stellinu svo að ekkert nuddast eða skröltir. Stellið er líka með festingu fyrir chainguide.