: Rise SL fulldempað rafmagnsfjallahjól forpöntun

Framdempari

140 mm

Afturdempari

140 mm

Þyngd frá

17 kg

Mótor

100 Nm

Létt og lipurt

Leikandi létt rafmagnsfjallahjól sem fangar allt það sem gerir fjallahjólreiðar skemmtilegar.

Kraftmesta Rise hingað til

Ný kynslóð af RS aðstoð sem sparar orku þegar lítið reynir á og bregst hratt við þegar slóðinn verður erfiðari.

Eitt samtengt kerfi

Mótor og rafdropper sætispípa í einu kerfi sem notar aðal batteríið og er stýrt með einni fjarstýringu.

Lipurt á slóðunum

Lítil þyngd, vel heppnuð geometría og fínstillt fjöðrun gera Rise SL náttúrulegt og leikandi á slóðunum, þar sem hjólið svarar hverri hreyfingu frá þér.

Frá aðeins 17 kg

Rise SL vegur frá aðeins 17 kg, sem er einstaklega létt fyrir rafmagnsfjallahjól. Fyrir vikið hagar það sér líkt og hefðbundið fjallahjól, lipurt og leikandi, sem gerir það einstaklega skemmtilegt á fjallahjólaslóðunum!

140 mm trail fjöðrun

Allar týpur af Rise SL koma með 140 mm FOX 36 SL framdempara og 140 mm fjöðrun að aftan. Létt og skilvirk fjöðrun með hraðri trail geometríu, sem hentar frábærlega í lengri túra og flæðandi slóða.

Afl þegar á þarf að halda

RS aðstoðin vinnur með þér í stað þess að taka yfir. Hún er mjúk og sparneytin þegar lítið reynir á, en skilar aflinu af krafti þegar brekkan verður erfiðari.

Nýr Shimano EP810 RS mótor

Þetta er kraftmesta Rise hjólið hingað til. Nýjasti mótorinn frá Shimano skilar allt að 100 Nm og 600 W en vegur aðeins 2,3 kg. Hann er hljóðlátari og næmari en áður og er með nóg af afli til að bruna upp erfiðustu klifrin!

Meiri drægni eða meira afl

Þú skiptir á milli tveggja stillinga í fjarstýringunni. RS stillingin (allt að 85 Nm og 400 W) gefur náttúrulega tilfinningu og hámarkar drægni, á meðan RS+ gefur þér fullt afl, 100 Nm og 600 W. Með Superboost takkanum færðu svo fullt afl tímabundið í bröttustu brekkunum.

420Wh
Batterí

Þyngd

1,9 kg

Áætluð hækkun

1500 - 1700 m

Léttasti kosturinn fyrir þá sem vilja sem lipurast hjól

630Wh
Batterí

Þyngd

2,9 kg

Áætluð hækkun

2000 - 2400 m

Fyrir lengri daga og meira klifur

210Wh
aukabatterí

Þyngd

1 kg

Áætluð auka hækkun

800 m

Utanáliggjandi batterí sem er smellt á hjólið í stað brúsahaldara

RS Control System

Í RS týpunum af Rise SL eru mótorinn, fjarstýringin og rafdropper sætispípan eitt samtengt kerfi sem Orbea hannaði frá grunni. Allt kerfið notar aðal batteríið svo að þú þurfir ekki að hlaða marga mismunandi íhluti, og öllu er stýrt með einni fjarstýringu.

Ein fjarstýring fyrir allt

Lítil og nett fjarstýring stýrir bæði aðstoðinni frá mótornum og dropper sætispípunni, án þess að þú þurfir að færa hendurnar á stýrinu. LED ljós sýna hvaða aðstoð er stillt á og stöðuna á batteríinu.

Bara eitt batterí að hlaða

Allir íhlutir kerfisins tengjast aðal batteríinu, svo það eru engin auka batterí sem þarf að muna eftir að hlaða. Stýrið verður líka einstaklega stílhreint og um 350 g léttara en með hefðbundnum skjá og dropper handfangi.

MC10-RS rafdropper sætispípa

Ný rafdropper sætispípa frá Orbea sem vegur aðeins 548 gr með 240 mm færslu. Hún notar aðal batteríið og skynjari í henni veit alltaf nákvæmlega í hvaða hæð hnakkurinn er, sem býður upp á nýja og snjalla eiginleika.

Hnakkurinn niður að hluta

Smelltu tvisvar á takkann og hnakkurinn lækkar um 20%, sem er frábært á tæknilegum köflum. Hægt er að stilla hversu mikið hann lækkar í RS appinu.

Niður þegar þér hentar

Smelltu einu sinni á takkann og sætispípan er tilbúin, hnakkurinn fer svo niður þegar þér hentar. Þannig heldur þú báðum höndum á stýrinu þegar mest á reynir.

Djúp sætispípa

Stellið er hannað þannig að 210 mm dropper sætispípa kemst alla leið niður, og allt að 240 mm í stærðum L og XL, svo að hnakkurinn verði ekki fyrir þér á leiðinni niður!

Concentric Boost

Afturfjöðrunin snýst um sama punkt og afturöxullinn. Það heldur fjöðruninni virkri og gripinu góðu þegar þú bremsar á grófu undirlagi, og færri hlutar skila léttara og stífara stelli.

OMR carbon stell

Stellið er úr hágæða OMR carbon þar sem minna efni er notað án þess að fórna styrk eða stífleika, sem heldur þyngdinni í lágmarki.

Gulur Dökkgrænn Kremhvítur Dökkblár Brúnn Grágrænn Ólífugrænn Vínrauður Ljósgrár

MyO

Rise SL er fáanlegt í MyO (My Orbea) útgáfu. Hannaðu draumahjólið þitt í þínum litum þér að kostnaðarlausu! Smelltu á litina hér fyrir ofan til að sjá nokkur dæmi.

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is