: Rallon enduro fulldempað fjallahjól forpöntun

Rallon Enduro er drauma fulldempað enduro hjól, það kemur með 180 mm fjöðrun að framan og 170 mm að aftan, og er hannað fyrir virkilega brattar og krefjandi aðstæður. Það er hannað til að vera með lágan þyngdarpunkt sem gefur því mikinn stöðugleika og hjólara mikla stjórn. Auðvelt er breyta allskonar stillingum á hjólinu fyrir mismunandi aðstæður. Hægt er að panta hjólið með 29" gjörðum eða í mullet útgáfu fyrir enn meiri stöðugleika (29" gjarðir að framan og 27,5" að aftan). Hjólið kemur með innbyggðu verkfæri, geymsluhólfi í stellinu og kemur filmað til að hlífa stellinu.

Framdempari

180 mm

Afturdempari

170 mm

Gjarðir

29" / Mullet

Stell

Carbon

Hratt niður brekkurnar

Fjöðrun sem er fínstillt fyrir brattar brekkur og skilar þér niður á fullri ferð.

Stillanlegt fyrir hvern slóða

Þú stillir hjólið eftir slóðanum og þínum stíl, með fleiri stillingum en nokkru sinni fyrr.

Byggt til að endast

Sterkbyggt hjól með íhlutum sem þola allt álagið sem fylgir enduro hjólreiðum.

Gert fyrir hraða

Rallon er ný kynslóð af enduro hjóli sem var þróuð árum saman á rannsóknarstofunni og í keppnisbrautum. Stöðugt hjól með fjöðrun í hæsta gæðaflokki og lágan þyngdarpunkt, gert til að koma þér á næsta stig.

Fjöðrun úr fjallabruni

Rallon kemur með 180 mm framdempara og 170 mm fjöðrun að aftan, með sömu virku fjöðrunarhönnun og Rallon DH fjallabrunshjólið. Nóg fyrir stærstu höggin í hjólagarðinum, án þess að það komi niður á lipurðinni.

Lágur þyngdarpunktur

Með GravityLink situr afturdemparinn neðar, sem lækkar bæði stellið og þyngdarpunktinn. Hjólið helst stöðugt í bröttum rennum, kröppum beygjum og á löngum sérleiðum, sama hversu gróft það verður.

Pláss fyrir 240 mm dropper

Brött sætispípa sem nær djúpt niður í stellið gefur pláss fyrir langa dropper sætispípu. Nánast allir geta notað 240 mm dropper, óháð stellstærð, svo að hnakkurinn sé aldrei fyrir þér þegar brekkan verður brött.

Fínstillt carbon stell

Stífleikanum í carbon stellinu er stýrt af nákvæmni, með aukinn stífleika við sveifarleguna og gott jafnvægi á milli fram- og afturhluta. Það skilar þér öryggi og gripi í grófum hliðarhalla.

Stillanlegt fyrir þig og slóðann

Rallon býður upp á fleiri stillingar en nokkru sinni fyrr, bæði þegar þú pantar hjólið og úti á slóðanum. Það er fljótlegt og einfalt að stilla hjólið eftir aðstæðum og þínum stíl.

Stýrishorn ±0,75°

Með stýrislegunni breytir þú stýrishorninu um ±0,75°, til dæmis til að fá slakara horn fyrir brattari slóða.

Flip chip

Með flip chip velur þú hversu progressive fjöðrunin er, 22,5% eða 27,5%, og skiptir á milli High og Low stöðu. Low gefur meiri stöðugleika á hröðum slóðum, en High meira pláss undir pedalana.

553 g lóð

Með hjólinu fylgir 553 g lóð sem er skrúfað beint á GravityLink við sveifarleguna. Meiri þyngd neðst gefur mýkra og stöðugra hjól, og þú tekur lóðið af þegar þú vilt snarpara hjól.

29" eða mullet

Rallon fæst með 29" gjörðum að framan og aftan fyrir hámarks hraða, eða í mullet útgáfu með 27,5" að aftan fyrir leikandi og lipurt hjól. Geometrían helst sú sama í báðum útgáfum.

442 eða 450 mm afturþríhyrningur

Hægt er að velja á milli 442 mm og 450 mm afturþríhyrnings. Sá styttri gefur leikandi hjól, en sá lengri meiri stöðugleika á miklum hraða.

Kaplar í gegnum stýrið eða ekki

Þú velur hvort kaplarnir liggja inn í gegnum stýrisleguna eða inn um kapalgöt á stellinu.

Byggt til að endast

Rallon skilar þér alla leið niður, með hljóðlátu og sterkbyggðu stelli og íhlutum sem eru valdir til að þola álagið í krefjandi enduro hjólreiðum.

OQUO MC32 gjarðir

MC32 TEAM álgjarðirnar eru þær sömu og keppnisliðið notar í fjallabruni, og MC32 LTD carbon gjarðirnar eru léttari kostur fyrir enduro.

FOX rafdempari

Fyrir þau sem vilja nýta hvert pedalatak er hægt að fá FOX rafdempara. Hann les slóðann 70 sinnum á sekúndu, stífnar í klifrinu og opnast alveg þegar brunað er niður.

FOX 38 framdempari

Krefjandi slóðar kalla á stífan og sterkan framdempara. Rallon kemur með 180 mm FOX 38.

Innbyggð verkfæri

Í stellinu er fjölverkfæri með 2, 3, 4 og 5 mm sexköntum sem segull heldur á sínum stað, og í afturöxlinum er 6 mm sexkantur.

LOCKR geymsluhólf

Geymsluhólf í stellinu þar sem þú geymir verkfæri, nesti eða jafnvel jakka.

Hljóðlátt og vel varið

Kaplarnir liggja inni í stellinu og mjúk gúmmíhlíf á afturþríhyrningnum dempar keðjuslátt, svo að ekkert skröltir. Stellið kemur líka filmað til að hlífa lakkinu.

MyO

Rallon er fáanlegt í MyO (My Orbea) útgáfu. Hannaðu draumahjólið þitt í þínum litum þér að kostnaðarlausu!

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is