Skilmálar
Um kaup vara í gegnum www.ofsi.is gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt. Niðurtalning á öllum frestum sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefst þegar móttaka vöru á sér stað.
Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð hefur verið greitt að fullu. Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin.
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Skilmálar þessir gilda frá 20. maí 2011.
Hafir þú fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband.