Festipunktar
Terra hjólið kemur með þó nokkrum festipunktum á stellinu fyrir allskonar aukahluti, hvort sem þú vilt festa töskur fyrir langferðalög eða auka brúsa.
Festingar fyrir bretti
Öll Terra hjólin koma með festipunktum fyrir bretti, að framan og að aftan. Hægt er að panta bretti aukalega með hjólinu.
Lockr XXL
Stellið kemur með innbyggðu stóru geymsluhólfi til að geyma allskonar, hvort sem það er auka föt, verkfæri eða mat.
Gjarðir
Þrjár mismunandi OQUO malar gjarðir eru í boði fyrir Terra hjólin.
OQUO RP50LTD
50 mm djúpar carbon gjarðir sem að lágmarka loftmótstöðu, og eru sérstaklega hannaðar fyrir malarkeppnir. Þetta eru gjarðir fyrir þá allra kröfuhörðustu.
OQUO RC30TEAM
Flottar 30 mm djúpar carbon gjarðir sem að henta vel í malarhjólreiðar og lengri vegalengdir.
OQUO RC25PRO
Vel byggðar og þægilegar ál gjarðir sem að henta öllu undirlagi.