Tubolito
Tubolito S-Tubo MTB 27.5/29 SV42 slanga
Tubolito S-Tubo MTB 27.5/29 SV42 slanga
Verð
4.090 ISK
Verð
Tilboð
4.090 ISK
Einingarverð
/
fyrir
Gat ekki hlaðað inn afhendingarmöguleika
Flest erum við með fjallahjólin slöngulaus í dag. Varaslöngu er samt alltaf gott að hafa með í för, og þá er mikilvægt að hún taki sem minnst pláss og vegi sem minnst.
S-Tubo er þynnsta og léttasta slangan sem Tubolito gerir fyrir fjallahjól. Hún vegur 43 g. Venjuleg Tubo slanga í sömu stærð vegur 84 g og hefðbundin létt bútýlslanga fyrir fjallahjól um 150 g. Munurinn er sá að S-Tubo rúllast niður í pakka sem hverfur í hnakktösku, vasa eða á rammann og gleymist þar þangað til dagurinn kemur þar sem þú þarft hana til að koma þér heim.
Eftir notkun er hægt að gera varanlega við hana með Tubolito viðgerðarsettinu.
- Þyngd: 43 g
- Passar: 27.5 x 1.8 til 29 x 2.5 (ETRTO 47-584 til 64-622)
- Ventill: 42 mm Presta, appelsínugulur
- Efni: TPU
Deila vöru
